Lífið er yndislegt! hreinn þvottur og tungl og stjörnur
dagurinn í vinnunni var þæginlegur og skemmtilegur, ég sá um aðalréttinn og það var pytte panne :) mjög gott :) unnum stutt í dag útaf starfsmannafundi þannig, ég og Jónas vorum búin um 13.30 og þá fórum við á "fund" til Ritvu og ræddum hvað við ætlum að elda/baka í tímanum hjá henni á mánudaginn sem væri íslenskt og hvað okkur vantaði(hvað hún þarf að panta) það sem okkur datt í hug var: íslensk kjötsúpa, kakósúpa+tvíbökur, ástarpungar og kleinur :) eftir fundinn höfðum við það rólegt fórum í búðina elduðum og svo bara upp í rúm um 22leytið en ég las til ca 23 og fór svo að sofa
28.jan
ég sá aftur um aðalréttinn í dag og nú var það fiskur í raspi+kartöflur+hrísgrjón. þetta var líka auðveldur og skemmtilegur vinnudagur. þegar heim var komið fór viðvörunarkerfið í ganag og sagði okkur að fara út (btw sagði að við ættum ekki að nota lyftuna! halló hér er engin lyfta hahaha) en allavegana við fórum út og stóðum þarna eins og asnar því það býr enginn hér nema við ísl og lettarnir og svo hollendingar sem voru ekki heima, eftir langa stund kom skólastjórinn og var að reyna að ath þetta og svo kom í ljós að það var bara bilun í öryggiskerfinu og við mættum fara inn. þannig að ég dreif mig inn og fór í sturtu og svo að hafa mig til því stefnan var tekin á pöbbarölt því á miðvikudögum eru ódýrir dagar á börunum
við fórum og hittum Finnsku krakkana sem eru svo æðisleg að það er meiriháttar. og við skemmtum okkur vel nema stelpan frá lettlandi var með prinsessu stæla allt kvöldið og kom heim með gaur
og Lóa greyjið heyrði allt í beinni útsendingu hinum megin við vegginn, guði sé lofað ég var ekki komin heim 
29.jan
ég vaknaði í vinnu eftir 1 og 1/2 tíma svefn og það var bara í góðu lagi, aftur sá ég um aðalréttinn sem var grænmetissúpa með pylsubitum og önnur með farsbitum, mjög góð
eftir vinnu fór ég heim og lagði mig smá skoðaði fréttirnar á netinu og las bók, horfði á dvd með Jónasi, eldaði svo kvöldmatinn og svo fórum við snemma að sofa ahh nice30.jan
Sá í fyrsta skipti síðan ég kom hingað tunglið og trjörnur! heiðskýrt loksins! fengum loksins nýja þvottavél enda vorum við búin að nota öll fötin okkar nánast bæði á réttunni og röngunni

ég vaknaði snarbiluð í skapinu eftir nóttina! s.s hollendingarnir voru með partý við hliðina á og það eru ýkt þunnir veggir á milli auk þess sem þeir gerðu í því að hringja dyrabjöllunni. svo voru lettarnir líka hjá þeim og þau voru alltaf að ganga fram og til baka um íbúðina hjá okkur! urr hvað ég var reið!

en í vinnuna var haldið og ég fór enn og aftur í aðalréttinn og í þetta skiptið var það kjöt í sóstu+kartöflur og það heppnaðist vel hjá mér
fengum nýja þvottavél og þvoðum allan daginn, ég fór í búðina og sá svo um að elda kvöldmatinn sem var í þetta sinn pytte panne
meðan Lóa og Arna misstu sig í að þrýfa 
spjölluðum lengi og fórum svo að sofa um miðnætti
31.jan (í dag)
ég vaknaði með Lóu og Örnu kl.hálf 7 en þær voru að fara með hjúkkunum til Helsingi í dag, en ég er að fara með Lindu og Heini í verslunarleiðangur núna kl 10 og svo í keilu með vinnunni kl 14 þetta verður eflaust frábær dagur
svona líka þegar maður hefur loksins hrein föt
jæja verð að drífa mig, stelpurnar eflaust rétt ókomnar bless í bili
og endilega kvittið/commenta gaman að heyra frá ykkur á Íslandi

p.s. eftir nákvæmlega viku verð ég að lenda á kaupmannarhafnarflugvelli á þessum tíma


. En þegar við vorum búin að koma okkur fyrir þá röltuðum við í bæjinn og fengum okkur að borða á Risso og fórum svo í SMarket og keyptum morgunmat, síðan fórum við heim og horfðum á DVD í tölvunum og fórum svo að sofa.


og það gengur bara mjög vel
